Ekkert veit ég um þessa Soffíu annað en að samkv. manntalinu 1880 fyrir Strandasýslu er hún vinnukona á Gjögri í Árnessókn. Þar er þá einnig Bogi Jón Bóasson barnsfaðir hennar.
Dóttur þeirra er hvergi að finna í nefndu manntali, þó er hún fædd 26. júlí 1880 í Tröllatungusókn en manntalið er miðað við 1. október.
Guðmundur Sveinsson, faðir Soffíu var bóndi á Hvalsá 1849 til 1883. Frá honum er lítillega sagt í Strandamenn II, bls. 230. Þar segir: "Börn þeirra (Guðmundar og Guðrúnar konu hans): Soffía dó um tvítugt, Jón í Þorpum, Guðrún ógift."
Ekki er þetta nú alveg rétt þar sem Guðrún var á Gögri 1880, þ.e. 30 ára, en bendir til þess að hún hafi nú ekki orðið langlíf, frekar en barnsfaðir hennar eða dóttir.
Kv.
Hálfdan